Markaðsráð ehf. annast hvers konar sölu- og/eða úthringiverkefni fyrir viðskiptavini sína.  Verkefnin geta m.a. verið sala á vörum eða þjónustu, öflun auglýsinga í blöð og tímarit, eftirfylgni á markpósti, fundabókanir, boðun í rýnihópa, öflun nýrra félagsmanna, styrktarmanna eða leiðréttingar á viðskiptamannaskrám fyrirtækja.