Þjóðskrá annast skráningar á upplýsingum um einstaklinga svo sem fæðingar, nafngiftir, flutninga og andlát.  Markhópalista og úrtök úr Þjóðskrá er til dæmis hægt að byggja á skilyrðum um kyn, aldur og búsetu einstaklinga en einnig má velja forráðamenn unglinga og barna á aldrinum 6 mánaða - 18 ára.
 
Markaðsráð ehf. býður viðskiptavinum sínum markhópalista og úrtök sem unnin eru úr Þjóðskrá með nöfnum einstaklinga til áritunar á lista, límmiða, bréfsefni, umslög, gíróseðla, greiðsluseðla eða á önnur form sem ætluð eru til almennar útsendingar eða handahófskennd úrtök vegna framkvæmda á skoðanakönnunum eða rannsóknarverkefnum.