Markaðsráð ehf. veitir alhliða þjónustu við gerð markhópa- og úrtakslista. Listarnir eru unnir samkvæmt lögum og reglum Persónuverndar og starfsreglum viðkomandi aðila þaðan sem upplýsingarnar eru fengnar s.s. Þjóðskrá, Fasteignaskrá Íslands og Umferðarstofu.
Bein markaðssetning á vöru og þjónustu hefur lengi verið þekkt aðferð. Lykillinn að árangri er að hafa réttar upplýsingar um markhópinn hvort sem um er að ræða útsendingu á markpósti, markaðssetningu í síma eða uppbyggingu á viðskiptamannaskrá. Með því að nota markpóst sem auglýsingamiðil er hægt að klæðskerasníða skilaboðin að völdum markhópi sem er mun persónulegri og árangursríkari aðferð en auglýsingar í fjölmiðlum. Árangur af útsendingu markpósta er auðvelt að mæla með því að fylgjast með hversu margir bregðast við honum.
Félagasamtök
